kynlíf eldri borgara :)
Hjónakornin Jón og Gunna voru komin af léttasta skeiði en voru mjög virk í kynlífinu eftir sem áður.
Eitt sinn sem oftar voru þau upp í rúmi, létu vel hvort að öðru og stefndu á að eiga mjög góða stund saman. Þegar Gunna hvíslar munúðarfullt í eyra Jóns verður hún furðulostin þegar hann rýkur upp úr rúminu. Karlinn grípur haglabyssuna og æðir út. Þar stendur hann á sprellanum og miðar upp á þak.
Hvern andskotann er karluglan að bardúsa núna hugsar Gunna ergileg. Hún æpir á hann og spyr hvern fjandann hann sé að gera.
Jón æpti á móti: þú sagðir að það væri rjúpa á þakinu
NEI, gargaði Gunna á móti: ÉG SPURÐI HVORT ÉG ÆTTI AÐ KRJÚPA EÐA VERA Á BAKINU!!
Æðruleysisbæn kvenna :) og ógeðslega fyndin saga!!
Æðruleysisbæn allra kvenna sem búa í návígi við karlmann. Nauðsynlegt að muna og fara reglulega með.
Dear Lord
I pray for Wisdom to understand my man; Love to forgive him;
And patience for his moods.
Because, Lord, if I pray for Strength,
I'll beat him to death.
AMEN
Þetta er ekkert betra í ævintýrunum
Þessi saga gerist á sólríkum morgni í skóginum, um það leyti sem bangsafjölskyldan rís úr rekkju.
Bangsi litli tölti inn í eldhús og settist við morgunverðarborðið. Syfjaður leit hann ofan í litlu skálina sína og sá að hún var tóm.
- Hver hefur borðað grautinn minn? sagði hann með ámátlegum rómi.
Bangsapabbi sem sat hinum megin við borðið, jafnsyfjaður og litli bangsi, leit þá ofan í skálina sína og sá að hans skál var lika tóm.
- Hver hefur borðað grautinn minn? Urraði hann grimmdarlega
- Ó mæ god!! sagði bangsamanna og ranghvolfdi í sér augunum. Hversu oft þurfum við að fara í gegnum þetta?
- Bangsamamma vaknaði fyrst allra.
- Bangsamamma vakti alla aðra. Bangsamamma hitaði kaffið.
- Bangsamamma tæmdi uppþvottavélina og raðaði upp í skápa.
- Bangsamamma lagði á borðið.
- Bangsamamma hleypti kettinum út, tæmdi kattardallinn og gaf kisu að éta og drekka.
- Bangsamamma fór út og sótti blaðið.
I will only say this once:
Bangsamamma er ekki búin að
búa til helvítis
grautinn ennþá!!!
sumt fólk
- er svo upptekið að einblína á ófarir/mistök/fokk/ annarra að það sér ekki hvað það sjálft er að gera
- er svo blint að það sér í alvöru ekki hvað það er að gera rangt
- er svo flinkt í því að fela sinn skít með því að gera annarra manna skít meira áberandi
- er svo mikið að takast ekki á við neitt í sínu lífi
- tekur enga ábyrgð á neinu sem gæti flokkast undir mistök
- fattar ekki að það á við alvarlegt vandamál að stríða
- hagar sér vel í smá tíma eftir að hafa fokkað upp, en hvað svo same shit different day
- neitar fram í rauðann dauðann fyrir að beljan fyrir framan þá sé bleik!!
ert þú svona?
krúsin vs langi og edinborg
en ekki get ég sagt að þau séu að hertaka krúsina, þegar þau mæta um það leiti sem hún opnar til að koma og dansa , en hvað gerum við íslendingarnir? mætum í fyrsta lagi 1 helst ekki fyrr en kl 2 og röflum yfir pólverjunum.. þetta finnst mér ekki sanngjarnt því þau mæta þó...
ég er hins vegar alveg sammála því að tónlistarsmekkur þeirra er ekki upp á marga fiska, að mínu mati, en ég skil aftur á móti plötusnúða krúsarinnar : að sjálfsögðu að spila það sem hefur virkað allt kveldið við að koma fólki út á gólf, sem jú er að mestu leiti pólverjar.... en hvaða rétt höfum við íslendingarnir til að rífa kjaft og skammast þegar við getum ekki einu sinni drullast til að mæta bara aðeins fyrr??
en ég hef nú sagt það lengi að mér finnst plötusnúðar krúsarinnar alger hörmung allir sem einn, og ekki átt gott kveld í langan tíma!! þá meina ég langarn og ég kem eingöngu á krúsina til þess að dansa, þar sem að ég drekk ekki og er því ekki að koma til að mingla við blindfulla/dópaða liðið sem kemur ekki til að dansa...
og annað ég er samt hjartanlega sammála Gyðu með að útlendingarnir okkar ættu að læra íslensku, og það strax við komuna til landsins, en við verðum að taka það með í reikninginn að margt af þessu fólki er vart skrifandi eða læst á sínu eigin tungumáli hvað þá á íslensku!... því tel ég betra að haga ísle$nskukennslunni þannig að ekki sé rokið í okkar flóknu málfræði heldur sé orðaforðinn efldur...
en í samhengi við krúsarumræðuna skiptir engu máli hvort að pólverjarnir séu vel eða illa talandi móðurmáli okkar, þar sem við íslendingar erum ekkert svakalega þekkt fyrir að blanda geði við þau, og að mínu mati eru þau ekkert óskýrari en margt drukkna fólksins sem er á krúsinni og það eru íslendingar.
annars finnst mér drykkjumenningin/djammmenningin hér á Ísafirði orðin alveg hörmung, bara til háborinnar skammar, mér vantar stað sem að er ekki illa lyktandi til að gera hlustað á góða tónlist og dansa frá mér allt vit.. kommon krúsin lokuð á föstudögum, og langi mangi með blindofurfulla trúbadorastemmningu sem að ég fýla alls ekki amk ekki á djamminu, og edinborg með einhvern stíl sem að ég skil ekki alveg, amk er hann Janus vinur minn allur að koma til á barnum þar, og ég get pantað mér vatn, og meira að segja sódavatn, ég ætla jafnvel að sjá hvort að ég þori í að panta mér óáfengan kokteil næst þegar ég fer.... :):):)
en í raun hef ég engar lausnir fyrir djamm menningu okkar ísfirðinga, nema kannski að hlúa að því sem við höfum og nýta það sem er til staðar, og ef að við lítum í eigin barm og upp úr ölli röfli , þá finnst mér amk við enganveginn nýta opnunartíma t.d. krúsarinnar, nálægt því nógu vel... ég væri meira að segja til í stað sem væri bara opinn til kl 1, og fara að dansa 8-1 eða eitthvað álíka...?? amk væri ég til í það, en það minnsta sem hægt er að gera er að nýta opnunartímana sem eru til staðar.
hvað segið þið hálsarnir mínir um þetta mál? eru það pólverjarnir sem að fæla okkur íslendingana frá eða erum við íslendingarnir bara allt of sjálfumglaðir og gleymum að líta í eigin barm?
dagurinn í dag kenndi mér...
| Staðan núna 23/9/2007 23:40 Reykjavík | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
hér er eitt sem að mér finnst mjööög sniðugt og í raun kannski smá vakning fyrir marga, því þessi mynd sýnir hvernig missterkir einstaklingar takast á við lífið, vandamálin og bara allt
Ég á afmæli í dag!


líður samt alveg svona núna!!

verð með kökur að heimili mínu á morgun og þeir sem ég hef ekki boðið en telja sig hafa erindi í kaffi til mín eru hjartanlega velkomnir :):)

Tinnslan kveður
men are like...
2. Men are like.Bananas . The older they get, the less firm they are.
3. Men are like Weather . Nothing can be done to change them.
4. Men are like ....Blenders You need One, but you're not quite sure why.
5. Men are like ....Chocolate Bars .... Sweet, smooth, & they usually head right for your hips.
6. Men are like ....Commercials ....... You can't believe a word they say.
7. Men are like Department Stores .... Their clothes are always 1/2 off!
8. Men are like ......Government Bonds .... They take soooooooo long to mature.
9. Men are like .....Mascara . They usually run at the first sign of emotion.
10. Men are like Popcorn ..... They satisfy you, but only for a little while.
11. Men are like Snowstorms .... You never know when they're coming, how many inches you'll get or how long it will last.
12. Men are like ........Lava Lamps ... Fun to look at, but not very bright.
13. Men are like Parking Spots All the good ones are taken, the rest are handicapped.
komin heim heilu og höldnu
vorum í 6 tíma á leiðinni sem er mjög gott miðað við hvað karlinn hjá vegagerðinni var búinn að hræða mig mikið !
hvað er málið með það?
hví gerir vegagerðarfólk það að gera meira úr veðrinu og færð þegar bókað er að það er kvennmaður að hringja? Bára mágkona hringdi um morguninn og passaði sig aðreyna að vera dimmrödduð og þá var í raun ekkert að færð bara að keyra varlega á verstu punktunum sem sagt Þorskafjarðarheiði, en þegar var talað við mig þá var hún nánast ófær!!
jahérna hér þetta þykir mér ekki spes:/
er að fara suður!!
fer keyrandi með Hönnu sætu sól . Báru og Ásthildi :):)
er að vísu smá nervus vegna óveðursins :):)
en vonandi reddast það bara keyrum bara hægt :):)
lov jú all
og þið fólkur í rvk hlakka til að sjá ykkur :):)








