Aðalvalmynd

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Shirt fail Funny Images, Skinny Apartment Building Funny Images, Awesome new show idea Funny Images, My Best Friend And Me?Then And Now Funny Images, A morning of awkwardness Funny Images, Vintage beer ad

Auglýsing

Vegur til farsældar

Árangur í lífinu, viðskiptum eða hverju sem er næst ekki nema með framtaksemi og dugnaði í leitinni að nýrri tæknikunnáttu, hugmyndum og ráðum. Byrjunarátakið nægir ekki til að halda verkinu gangandi. Stöðnun blasir við nema þú getir endurnært sköpunarorku þína með innblæstri nýrra hugmynda.

Ef þetta fær mann ekki til að bráðna þá veit ég ekki hvað

10. maí 2008 klukkan 11:09
Hún fósturdóttir mín er alger snúlla!

færði mér gjöf áðan, vegna þess að mæðradagurinn er á morgun, og hún var alveg viss um að hún myndi gleyma að færa mér gjöf þá, því færði hún mér blóm og kort, á kortinu stóð :
Elsku Tinna mín til hamingju með mæðradaginn. takk fyrir að vera stjúpa mín, ég elska þig ótrúlega mikið

Ljóð: hún Tinna mín

Hún Tinna er oftast að vinna
hún er klár
og setur plástur á sár
hún er dugleg að læra
og sófann er hún því að færa
hún kann að baka
og segir: krakkar það er tilbúin kaka
hún kann á klukku
og setur súkkulaði í krukku
hún Tinna er svaka Cool
og er því aldrei fúl


ó men mér hlýnaði um hjartarætur við að fá þetta, svoooo sæt og góð stelpa hún Júlíana Lind

Júlíana sætaslínan mín

hér er snúllan mín ásamt litlu stystur sinni

góða helgi gott fólk :):)

flott þetta! að vísu stolið en hrikalega flott!

24. apríl 2008 klukkan 01:00



BRÉF FRÁ FÍKNINNI........


  Fíkn Ég var bara að hugsa um hvort þú hafir gleymt mér, ég er sjúkdómurinn þinn. Ég hata fundina, ég hata æðri mætti, ég hata alla sem hafa prógram. Skilaboð: Allir sem komast í snertingu við mig, ég óska ykkur kvalar og dauða. Leyfið mér að kynna mig, ég er sjúkdómurinn fíkn. Ég er gráðugur, falskur og sterkur. Svona er ég. Ég hef drepið manneskjur í milljóna tali og er ekki enn ánægður. Ég elska að koma þér á óvart. Ég elska að þykjast vera vinur þinn og huggari, ég hef huggað þig, eða hvað? Var ég ekki til staðar þegar þú varst einmanna? Þegar þú vildir bara deyja, var það ekki ég sem þú hrópaðir á? Ég var hjá þér. Ég elska að láta þér líða illa. Ég elska að láta þig gráta, eða öllu heldur að ég fái þig það lokaða tilfinningalega að þú getir hvorki fundið sársauka né hamingju. Þegar þú merkir ekkert tilfinningalega, þá er ég ánægður og allt sem ég bið þig um eru miklar kvalir. Ég hef alltaf verið til staðar fyrir þig. Þegar allt gekk vel hjá þér, bauðst þú mér inní líf þitt. Ég var sá eini sem hélt með þér og saman eyðinlögðum við allt það góða sem var í lífi þínu. Fólk tekur mig ekki alvarlega. Það tekur heilablæðingu, hjartaáfall og sykursýki alvarlega, heimskingar.. Ég er sjúkdómur sem allir hata, en ennþá kem ég óboðinn. Þú velur að hafa mig. Það eru svo margir sem hafa valið mig fram fyrir venjulegt líf og frið. Meira en þú hatar mig, hata ég 12Spora prógrammið, Æðri mátt þinn og fundina hata ég. Allt þetta svíkur mig og ég get ekki unnið eins og ég vill. Nú verð ég að hafa mig hægan. Þú sérð mig ekki en ég er hér. Þangað til við hittumst aftur, ef við hittumst óska ég þér kvalar og pínu. Kveðja, Fíkn.

Fréttatilkynning

17. apríl 2008 klukkan 15:49
Ertu einmana? vantar þig kúrufélaga, sem jafnframt er villtur á við tígur? vantar þig einhvern til að eyða góðum hjartahlýjum stundum með á kveldin, einhverjum sem er ALLTAF til í að koddahjalast alla nóttina?

Þá er ég með manninn fyrir þig! nýkominn og til í slaginn!

ástæða þessarar auglýsingar er sú að nokkrar vinkonur hef ég átt í gegnum tíðina sem bara finna ekki þann rétta. Og hef ég eitt ófáum kvöldstundum í að sýna vinkonum mínum fram á hina ýðilfögru flóru karlpenings Ísafjarðarbæjar, við misjafnar undirtektir.  Ég meina sumir voru svolítið þyrstir og "veraldarvanari" en aðrir sem á boðstólnum voru.  Ég benti þeim á það að í ljósi þess að þær voru nánast komnar á grafarbakkann og því alls ekki staður né stund til að vera pikkí á einn eða neinn hátt!

Jú þegar ég fór að skoða umbjóðendur mína (það er að segja spræku piparsveinana) þá sá ég að þær höfðu eitthvað til máls síns. Þær mótmæltu meira að segja svo harðlega að þær voru komnar á ferð og flug um landið til að skoða hvurslags gripir væri á atvinnuleysisskrám víðsvegar um landið!!  En eins og þær bentu mér á að þar sést svo sannarlega hvað þeir hafa til heimilisins að bjóða þ.e.a.s meirapróf -- keyra flutningabílinn í nyja flotta húsið, smiðir, dytta að því, ýmislegt... hann getur vökvað garðinn og séð um kartöfflurnar!!

En stelpur nú hef ég snúið við blaðinu og sagði skylið við fola vestfjarða!

ég er komin eins og hér að framan sagði með hinn eina sanna draumaprins! hann gerist ekki betri, og svo er hann líka svo ófeiminn!
Njótið augnakonfektsins þennan grip viljið þið ekki láta renna ykkur úr greipum til nágrannakonunnar sem er á höttunum eftir því sama!!
 
hér er mynd af gripnum! Hann gegnir hvaða nafni sem er Glottandi Eina sem ber að varast að hann hefur viðkvæma sál





P.S talandi um að vakna úr dvala tvö óstolin blogg í dag, þetta gerir svefnleysið manni, alveg stórhættulegt

óstolið og ekki brandari í dag

17. apríl 2008 klukkan 07:30
Sko ég er að pæla: 2 teningum er kastað hverjar eru líkurnar áð fá tvær sexur eða eina sexu?  hví er það P(2 sexur) 1/6 * 5/6 + 5/6*1/6 =10/36
P(1 sexa) 1/6 *1/6 = 1/36
sem er svo lagt saman 11/36

dí men

og líka hví er önnur summa  1- 1/6 = 5/6


dísús hausinn í rugli og hugsa ekki um annað en z - brautir  eða eitthvað

ekkert búin að sofa rugl í haus og bull og bull

er farin í próf í stærðfræði

Alveg glænýt og eldheitur brandari!!

14. apríl 2008 klukkan 14:11
Æj ég er eitthvað andlaus þessa dagana og eina sem að mér dettur í hug að "blogga" eru brandarar sem að sýstir mín sendir mér, bæ ðe vei ef þið viljið sjá nýja töff átfittið hennar skellið ykkur í bankann á Suðureyri og sjáið hana, hún er í dragt haha! 



Megrun fyrir karlmenn
 
Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim "misstu 5 kg á 5 dögum" pakkann.
 
Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin
19 ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm.  Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig".
 
Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni.  Eftir nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp.  Sama stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist í hvert skipti.  Á fimmta degi vigtar félaginn sig, og viti menn, hann hefur misst 5 kg.
 
Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og pantar hjá þeim "misstu 10kg á 5 dögum" pakkann.
 
Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta og kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð.  Hún er eingöngu klædd í Reebok hlaupaskó.  Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig".
 
Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni.  Hún er auðvitað í fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki.  Næstu fjóra daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form.  Á fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10 kg.
 
 
 
Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar "misstu 25 kg á 7 dögum" pakkann.  "Ertu alveg viss?"spyr sölumaðurinn " Þetta er erfiðasta prógrammið okkar"
 
"Ekki spurning" svarar félaginn, "mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár".
 
 
 
Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór, helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm.
Um hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur "Ef ég næ þér, er rassinn á þér MINN!"
 
 
 

Félaginn missti 32 kg í þeirri viku.

Einn góður.

02. apríl 2008 klukkan 11:44

  
 
90 ára gamall maður var í árlegri læknisskoðun og læknirinn spurði hann hvernig hann hefði það.
Mér hefur aldrei liðið betur. Nýja konan mín er 18 ára og hún gengur með fyrsta barnið okkar!
 
Læknirinn hugsaði um þetta eitt augnablik og sagði svo:
Einu sinni var maður sem var mjög ákafur skotveiðimaður, hann sleppti aldrei veiðitímabili.
 
 
Dag einn var hann á mikilli hraðferð og hann greip með sér regnhlíf í staðinn fyrir riffilinn sinn.
Þegar hann var kominn langt inn í skóginn þá gengur hann fram á stóran og grimman skógarbjörn.
Hann miðar á hann með regnhlífinni og bang,  björninn dettur niður dauður!
 
Það er óhugsandi, sagði gamli maðurinn, einhver annar hlýtur að hafa skotið hann.
 
 
Já..........það er nú eiginlega það sem ég var að reyna að segja, svaraði læknirinn.
 
 
                \|/  
     
              (@ @)  
----oOOo--(_)--oOOo----
   

já já einn brandari í viðbót

31. mars 2008 klukkan 16:38


Karlinn og sínöldrandi eiginkona hans, fóru í ferð til Jerusalem.
           Þar andaðist eiginkonan.  
 
           Útfararstjórinn bauð karlinum tvo kosti:  
           Það kostar 350.000 kr að senda hana heim og þá er   athöfnin eftir,  en við getum grafið hana hér í Landinu helga fyrir 10.000 kr. 
        
          Karlinn velti þessu svolítið fyrir sér og sagðist svo vilja senda hana heim.
 
           Af hverju ættir þú að sóa 350 þúsundum til þess að senda konuna heim. 

           Það væri bara indælt að henni væri búinn legstaður hér, auk þess sem það kostar ekki nema 10 þúsund krónur.
 
           Sá gamli svaraði:  
           "Fyrir löngu síðan lést hér maður, hann var grafinn hér, en á þriðja degi þá reis hann upp frá dauðum.   

           Ég get bara ekki tekið þá áhættu."


Ble ble fínt inn í vikuna
rock u in the face :):)

enn meiri gúrka?

24. mars 2008 klukkan 21:40
Loftbelgsævintýrið 
Maður í loftbelg sá að hann var að missa hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar: Afsakið, geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki hvar ég er. Konan svaraði: Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð, milli 40. og 41. Norðlægrar breiddargráðu og milli 59. og 60. Vestlægrar lengdargráðu.
Þú hlýtur að vinna við tölvur, sagði loftbelgsmaðurinn. Það geri ég, svaraði konan. Hvernig vissirðu það ? Nú, svaraði maðurinn, allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp frá þér. Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína.
Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við stjórnun. Já, sagði maðurinn. En hvernig vissir þú það? Nú, sagði konan, þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara. Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern veginn mín sök.

meiri gúrka

12. mars 2008 klukkan 11:39

*Að búa til barn !!! *

 Það er ekki eitt einasta dónaorð í þessu og þetta er mjög fyndið.
 
Jónas og frú gátu ekki eignast barn svo þau ákváðu að fá sæðisgjafa til að koma og starta fjölskyldu. Daginn sem "sæðisgjafinn" átti að koma í heimsókn, kyssti Jónas konuna sína bless og sagði "jæja, elskan, ég er þá farinn í vinnuna, maðurinn kemur fljótlega."
 
 Hálf tíma síðar, er fyrir tilviljun, barnaljósmyndari, staddur í hverfinu hennar og hringir á bjöllunni í þeirri von að fá verkefni. Góðan daginn frú, sagði hann, ég er komin til að....... "Ó, þú þarft ekkert að útskýra sagði Jóna feimnislega, ég átti von á þér. Í alvöru, sagði ljósmyndarinn. Nú það er ánægjulegt, vissirðu að börn eru mín sérgrein?? Ja, það er nú akkúrat það sem við hjónin vorum að vonast eftir. Gjörðu svo vel og komdu inn og fáðu þér sæti. Eftir smástund sagði hún, vandræðalega, "hvar byrjum við?" "Láttu mig bara sjá um allt. Ég byrja yfirleitt í baðkarinu, svo á sófanum og loks nokkrar á  rúminu. Stundum er meira að segja stofugólfið heppilegast, það er hægt að teygja svo vel úr sér þar "
 
 "Baðkarið, stofugólfið, hugsaði Jóna, Engin furða að þetta gekk ekkert hjá okkur hjónum - "Já, frú mín góð, ég get ekki lofað fullkomnum árangri í hvert skipti, en ef við notum mismunandi stellingar og ég skýt frá mismunandi sjónarhornum, þá þori ég að lofa að þú verður ánægð með útkomuna." Vá, það er aldeilis mikið sagði Jóna með andköfum. "Frú mín góð, í mínu starfi verður maður að gefa sér góðan tíma í hlutina. Ég mundi gjarnan vilja skjótast í þetta en ég er viss um að þú yrðir ekki ánægð með útkomuna. "Ætli maður kannist ekki við svoleiðis, tautað Jóna lágt". Ljósmyndarinn dró upp nokkur sýnishorn af barnamyndum og benti Jónu á árangurinn.
 
 "Mér tókst sérstaklega vel til með þessa tvíbura sagði ljósmyndarinn, eins og mamma þeirra var þó erfið". - "Var hún erfið, spurði Jóna ?"  "´Ég er nú hræddur um það. Ég varð að fara með hana í lystigarðinn til að ná að ljúka verkinu vel. Fólk safnaðist að og fylgdist með. "Fylgdist með? sagði Jóna og gapti af undrun" - og þetta tók í allt 3 tíma. Móðirin hrópandi og kallandi allan tímann - ég gat varla einbeitt mér, svo þegar það byrjaði að dimma varð ég að gefa í, en það var ekki fyrr en íkornarnir voru farnir að narta í græjurnar þá varð ég að hætta
 og ganga frá.
 
 Jóna hallaði sér fram og sagði "voru þeir í alvöru farnir að narta í .... græjurnar? Þetta er alveg satt frú mín góð.
 
 "Jæja ef þú ert tilbúin þá ætla ég að gera þrífótinn klárann "ÞRÍFÓTINN???
 
 "Ó já, frú Jóna. ÉG verð að nota þrífót "to put my Canon on, It's much too big to be held in the hand very long."
 
 ÞAÐ STEINLEIÐ YFIR FRÚ JÓNU.

Gúrkutíð

04. mars 2008 klukkan 14:24
 því set ég bara brandara hér inn :):)
 
90 ára gamall maður var í árlegri læknisskoðun og læknirinn spurði hann hvernig hann hefði það.
Mér hefur aldrei liðið betur. Nýja konan mín er 18 ára og hún gengur með fyrsta barnið okkar!
 
Læknirinn hugsaði um þetta eitt augnablik og sagði svo:
Einu sinni var maður sem var mjög ákafur skotveiðimaður, hann sleppti aldrei veiðitímabili.
 
 
Dag einn var hann á mikilli hraðferð og hann greip með sér regnhlíf í staðinn fyrir riffilinn sinn.
Þegar hann var kominn langt inn í skóginn þá gengur hann fram á stóran og grimman skógarbjörn.
Hann miðar á hann með regnhlífinni og bang,  björninn dettur niður dauður!
 
Það er óhugsandi, sagði gamli maðurinn, einhver annar hlýtur að hafa skotið hann.
 
 
Já..........það er nú eiginlega það sem ég var að reyna að segja, svaraði læknirinn.
 
 
                \|/  
     
              (@ @)  
----oOOo--(_)--oOOo----
   

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Tinna Óðinsdóttir
  • Kennitala: 2309823099
  • Netfang: tinna_o@hotmail.com
  • Staður: Ísafjörður
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi, Skrifstofusjtóri & bókari Ásels ehf, eiginkona, móðir & vinkona
  • Hjúskaparstaða: Gift :):):):)
  • Um mig: já:)
  • Annað: nibb