Aðalvalmynd

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Proud to be Fat Funny Images, Vegan Hunter Funny Images, World?s Tallest Man Meets World?s Shortest Man Funny Images, Woman behind the wheel Funny Images, Small Kitty Falling Asleep Funny Images, Aliens are everywhere

Auglýsing

Vegur til farsældar

Árangur í lífinu, viðskiptum eða hverju sem er næst ekki nema með framtaksemi og dugnaði í leitinni að nýrri tæknikunnáttu, hugmyndum og ráðum. Byrjunarátakið nægir ekki til að halda verkinu gangandi. Stöðnun blasir við nema þú getir endurnært sköpunarorku þína með innblæstri nýrra hugmynda.

játs!

11. mars 2009 klukkan 08:47

Hahhahaa þessi "pistill" byrjaði í raun sem svar við bloggi hjá tengdamóður minni, sem leiðist svo sannarlega ekki að fara misfögrum orðum um okkar æðislegu stjórnálamenn. Minn pistil er mjög óvandaður, og kom bara þegar ég byrjaði að pikka, hann er meira svona eins og það hafi verið kveikt á krana.
Ég er mikið búin að reyna að botna í þessu stjórnmálafargani Íslands í dag og satt að segja botna ég hvorki upp né niður í þeim, en það litla sem ég get kalllað "Mín skoðun" er sú að stjórnmálamenn með öllu og enginn undanskilinn eru búin að skíta feitt upp á bak, sjálfstæðisflokkurinn fyrir að hafa farið svo lengi með stjórnina og klúðrað því, og hinir fyrir að horfa á , en að vísu finnst mér samfylkingin ekki fá sinn hlutann af skellinum, það er sem samfylking og sjálfstæðisflokkurinn eiga, því fólk er bissý að kúka á sjálfstæðisflokkinn, var ekki samfylkingin með í meirihlutastjórn lengi?
Eitt semég hef líka pælt í, ég er alltaf að segja að maður eigi að fá að kjósa fólk en ekki flokka, svo sandkassaleikurinn hætti, þessi x flokkur í meirihluta og svo framvegis, svo þegar Kristinn H. sagði sig úr Frjálslyndaflokknum og gekk aftur til liðs við framsóknarflokkinn, þá byrjaði tepran í mér að víbra, og hún sagði : dísös, á maður að treysta svona fólki sem flaksar á milli flokka og skiptir um þá eins og nærbuxur? því hann Kristinn er svo sananrlega ekki að skipta um flokk í fyrsta sinn..... en við nánari athugun komst ég að því að já hví ekki? hann er amk þá maður sem er trúr sínum eigin skoðunum, og hans skoðanir og trúr falla ekki undir stefnu Frjálslyndra, frekar framsóknarmanna... er það ekki málið? er ekki málið að hlusta á það fólk sem hefurr eilítið af sjálfstæðum skoðunum og þylja ekkis tefnuskrá flokksins líkt og þeir kunni hana utan að? hvaða svo flokk viðkomandi er í?
Og annað, þá er ég ansi hrædd um að skellurinn komi ekki almennilega fyrr en eftir að ný stjórn taki við, því að við erum svo tilbúin að fá hvaða vitleysinga inn, nema þá sem inni eru núna, out with the old, and in with the new. No matter what, og er ég ansi hrædd um að við munum ekki vera í neitt betri málum, því skyndilausnir eru aldrei hagkvæmar, auðvitað áttu öll dýrin í skóginum bara að drullast til að verða vinir fyrir möööööörgum kjörtímabilum síðan, og trúi ég ekki á að svo verði nú frekar enn fyrri daginn, þá sérstaklega v/ þess að þorri landsmanna er ennþá að leita á hinum eina sanna sökudólg. Sem er svo sannarlega fundinn að mínu mati, sökudólgurinn er ég og þú og hinn og þesisi, það er við sem kusum þessa flokka og þetta fólk, við treystum þeim og ég taldi það traust eiga að vera til staðar hvort sem illa áraði eður ei...en hví ekki að reyna?? Í versta falli þá slekkur sá síðasti í Leifsstöð.

 

Náði prófinu!!!

17. desember 2008 klukkan 02:54
jeminn eini fékk 8.5 í því er meeeega ánægð!!!! sjett var alveg rosalega efins með þetta allt saman, og algerlega óviss um stöðu mína en þetta gat ég er rosalega kát með mig í dag!

en er að fara að koma mér í háttinn... æðislegt kvöld á enda með yndislegum konum miiiiiiiiiiiiiiiiikið hlegið eiginlega alveg svakalega mikið, þá sérstaklega seinnipartinn :)

endurtökum leikinn sem fyrst stúlkur :)
ætla núna að koma mér í háttinn :)
GN :)

Gallabuxnabarbie

12. desember 2008 klukkan 09:20

Hver man ekki eftir þessari auglýsingu : Gallabuxnabarbie er að fara út... töff hár... góðir vinir rosa klár... eða e-ð álíka!! hever man ég verð að fá að vita hvernig þetta var því ég er búin að vera með þetta á heilanum síðan á mánud! þökk sé Sunnu tunnu! :):)

annars allt í góðu hér... svooo glöð að vera búin í skólanum!!!
Kofinn þrifinn í dag, pizza og spil í kvöld hjá Kötu og Óla og  og tær í loft um helgina :) já annrs er ég að fara í Partý annað kvöld getur það verið? man ekki alveg er nebbla með alsheimer :)

Hefðin að hafa engil á jólatréstoppnum

03. desember 2008 klukkan 10:57
Eitt árið var sveinki frekar pirraður . Það gekk allt á afturfótunum í jólasveinaverksmiðjunni. Aðstoðarmenn jólasveinsins höfðu farið á alveg svaðalegt fyllerí, keyrt á hreindýrasleðanum eins og brjálæðingar þannig að hreindýrin voru ýmist uppgefin eða fótbrotin eftir lætin. Framleiðsla gjafanna hafði seinkað og til að kóróna allt hafði engillinn sem hann sendi til að finna jólatré ekki sýnt sig í marga daga. Loksins kemur engillinn heim með tréið og segir ólundarlega "hvar á ég svo að troða þessu fokkings tré" Síðan þá hefur verið hefð að hafa engil á toppnum á jólatréinu......  


Annars er heilsan mín fín, komin 17v sléttar í dag og er hress, allt í góðu standi ennþá hef ég ekki þyngst neitt þrátt fyrir að vera samt hætt að reykja og er mega glöð með það :):)
próf á föstudag og svo er ég komin í jólafrí.

Hef ákveðið að leggja skólagöngu á hilluna í augnablik og einbeita mér að því að vera ég, og mamma Óðins Freys uns litli grís kemur í maí. Langar að geta komið heim úr vinnu og ekki vera að hafa samviskubit yfir að þurfa að læra og annað slíkt, það verður svít!!
annars allir velkomnir í kaffi í stórholtið eftir föstudag, þessu er sérstakelga beint til ákveðinna vina sem ég er ansi hrædd um að vita ekki hvar ég á heima og þið vitið hver þið eruð :)

RÁÐ FYRIR ÚTBRUNNAR MÆÐUR

25. nóvember 2008 klukkan 08:50
Burnout eða kulnun er hugtak sem mikið er notað í vinnu- og heilsusálfræði. Talað er um kulnun þegar streitan í lífi okkar er orðin það mikil að hætta er á að við brennum út. Yfirleitt er talað um kulnun í tengslum við vinnu úti á vinnumarkaðnum. En það geta fleiri brunnið út en fólk sem vinnur úti, til dæmis heimavinnandi húsmæður.

Allar mæður vilja hugsa vel um börnin sín og heimilið. En til þess að geta sinnt því krefjandi starfi að hugsa um börn og heimili verða mæður líka að hugsa um sjálfa sig. Við konur gleymum þessu því miður allt of oft!
Hér koma nokkur ráð fyrir útbrunnar mæður eða mæður sem eru við það að brenna út:... Nánar

tíminn líður

19. nóvember 2008 klukkan 10:15
Já svpo sanarlega, önnin á enda og ég engu nær, er alveg búin að sjá það að ég elska ekki mannfræði eins og ég hélt, ég held að ég elski ennþá að verða félagsráðgjafi.

stefnan er sumsé sett þangað ekki næsta haust heldur haustið þar á eftir, það er ef það verður ekki fyrr í boði í almennilegu fjarnámi. :)

en fréttir biður fólk um jú nóg er um fréttir á þessu heimili því kaka er í ofninum gott fólk, við Skafti munum eignast anna grísling um miðjan maí 2009, er semsagt sett 13. maí.

en nóg er um gríslingskomur í mínu nánasta umhverfi, hvort sem við skoðum út frá minni famelíu eða skafta :):)

ekki lengra í bili ritgerðin kallar!!

mbk Tinna

Sjitt hvað ég hló

30. október 2008 klukkan 10:34
Dag einn var samfélagsfræði og þá spurði kennarinn hvað feður þeirra störfuðu.
Börnin svöruðu eins og þeim er lagið: Pabbi minn er lögga, brunaliðsmaður, skrifstofumaður, vinnur í verslun og svo framvegis.
En kennarinn tók eftir því að Nonni litli var óvenju hljóður og lét lítið fara fyrir sér.

Hvað gerir svo pabbi þinn, spurði kennarinn Nonna litla.
Hann dansar nakinn fyrir framan karla á öllum aldri á veitingastað á kvöldin og á næturnar.
Svo græðir hann fullt á því að fara með þeim áhorfendum sem best bjóða út í portið á bak við veitingastaðinn þar sem hann dansar einkadans fyrir þá í nokkrar mínútur.

Kennarinn varð eðlilega mjög undrandi yfir svari Nonna litla og í miklu fáti skipaði hann hinum krökkunum að fara að lita, en Nonna litla tók hann afsíðis.
Er þetta alveg satt sem þú sagðir um hann pabba þinn ... Dansinn og allt það?
Nei, nei, sagði Nonni litli feiminn.
Pabbi vinnur hjá Kaupþing en ég þorði sko alls ekki að segja það fyrir framan hina krakkana


annars er ég góð, alveg að ná upp í skólanum, það fer að koma að því!!
heimsóknir eru alveg í boði fyrir ykkur fólk heim til mín ég er ekki eitróð þó ég sé hætt að reykja...
já bæ ðe vei ég er hætt að reykja, með hnökrum er ég búin að ná næstum 1 og hálfum mánuði!!

Já það er nokkuð til í þessu

18. október 2008 klukkan 21:52
Dag nokkurn þegar maðurinn kemur heim frá vinnu sinni kemur hann að öllu
gjörsamlega á hvolfi í húsinu..
Börnin hans 3 voru úti, ennþá í náttfötunum að leika sér í drullunni með
nestisboxin tóm og umbúðapappír var stráð ut um alla lóðina...
Dyrnar voru opnar á bíl frúarinnar, sama sagan var með útidyrnar á húsinu..

Þegar hann kom inn í forstofuna blasti við honum enn meiri óreiða.
Lampi hafðu verið felldur um koll, gólfmottan var kuðluð við einn vegginn.
Í næsta herbergi var teiknimynd í TV og á hæsta styrk og leikföng af öllum
stærðum og gerðum voru dreifð um allt herbergið.
Í eldhúsinu .. diskarnir flæddu út úr vaskinum.. morgunmaturinn var
sullaður
út um allt borð.. hundamatur út um allt gólf....
brotið glas var undir borðinu, smá sandhrúga var við bakdyrnar .
Hann hraðaði sér upp stigann, troðandi á leikföngunum og fatahrúgum í leit
að konu sinni.
Hann hafði áhyggjur af því hvort hún hefði orðið veik eða eitthvað
alvarlegt
hefði komið fyrir.
Hann fann hana hangsandi inni í svefnherbergi, ennþá í krumpuðum
náttfötunum
að lesa smásögu.
Hún leit brosandi á hann og spurði hvernig dagurinn hefði verið.
Hann leit á hana ringlaður og spurði, "Hvað skeði hér í dag?"
Hún leit aftur brosandi á hann og svaraði:
"Þú spyrð mig á hverjum degi þegar þú kemur úr vinnunni hvað ég hafi
eiginlega verið að gera í allan dag?"
"Já" segir hann tortrygginn.
Hún svarar. "Jæja, í dag gerði ég ekkert!!!"

16. október 2008 klukkan 14:58
Tumble out of bed and stumble to the kitchen;
pour myself a cup of ambition,
and yawn, and stretch, and try to come to life.
Jump in the shower, and the blood starts pumping;
out on the street, the traffic starts jumping,
with folks like me on the job from nine to five.

Chorus: 1,3,5.
Nine to five, what a way to make a living;
barely getting by,it's all taking and no giving.
They just use your mind, and (depending on verse) "they never give you" or
"you never get the" credit; it's enough to drive you crazy, if you let it.

Verse 2
They let you dream just to watch them shatter;
You're just a step on the boss man's ladder,
But you've got dreams he'll never take away.
In the same boat with a lot of your friends;
Waitin' for the day your ship'll come in,
And the tide's gonna turn, and it's all gonna roll your way.

Chorus: 2
Nine to five, for service and devotion;
you would think that I would deserve a fair promotion;
want to move ahead, but the boss won't seem to let me.
I swear some-times, that man is out to get me.

Chorus: 4,6.
Nine to five, they've got you where they want you;
There's a better life, and you dream about it, don't you?
It's a rich man's game, no matter what they call it;
And you spend your life putting money in his pocket.






þetta er samt svoldið mikið í þessu vídjói?

annars er ég góð í dag
Palli í kvöld og svonna hvernig er stemmarinn fyrir því ?

mitt

11. október 2008 klukkan 17:22
þetta lag er í raun uppáhaldið mitt, ég verð eiginlega að segja það.  Það er samið af tengdamömmu minni til Tengdapabba fyrir ótal árum, og svooo fallegt.  Já vil kynna ykkur fyrir því en svo getið þið farið á síðuna hennar  www.asthildurcesil.blog.is tengdó og hlustað á það :

 

Óður til eiginmanns



Er ég horfi inn í augun þín,
undur blíð þau eru ástin mín.
Þú þolinmóður þraukar mömmu hjá,
þekkir alla galla til og frá

Við lifað höfum saman langa tíð.
í ljúfri sælu stundum var þó stríð.
Þú vissir að börn og bú var ekki allt
og leyfðir mér að lifa þúsundfalt.

Því ég vil lifa, lifa lifa
Lífinu lifandi.

Ég elska þig og einnig börnin mín,
og innst inni þá er ég bara þín.
Svo geysimargt samt glepur huga minn.
Og Guð einn veit hvað verður næsta sinn.

Því ég vil lifa, lifa, lifa, lífinu lifandi,
ég verð að lifa lifa lifa, ekki sofa sitjandi

ég fæ alltaf gæsahúð þegar ég heyri þetta lag :):)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Tinna Óðinsdóttir
  • Kennitala: 2309823099
  • Netfang: tinna_o@hotmail.com
  • Staður: Ísafjörður
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi, Skrifstofusjtóri & bókari Ásels ehf, eiginkona, móðir & vinkona
  • Hjúskaparstaða: Gift :):):):)
  • Um mig: já:)
  • Annað: nibb